Sumarbústaður til leigu allt árið, bústaðurinn er í 10 km fjarlægð frá Stykkishólmi, hann stendur í kjarrivöxnu svæði á stórri lóð. Góðar gönguleiðir er frá bústaðnum eða í nágrenninu.
Við bústaðinn er sólpallur og heitur pottur. Í bústaðnum er gott eldhús, góð sturtuaðstaða, tvö svefnherbergi og stofa. Rúmin eru ný og vönduð, annað er Queen size og hitt er kojur með 140 cm breiðu rúmi niðri og 90 cm uppi. Svefnsófi er í stofunni, einnig er hægt að fá barnaferðarúm, hægt er að leigja rúmföt á 250 kr settið yfir dvölina, (líka fyrir ungbörn).
Dýr eru ekki leyfð, þetta er reyklaus bústaður og leigist eingöngu fjölskyldufólki.
Fleiri myndir og verð á bungalo.is
Upplýsingar gefur Benný Eva í síma 438-1233 eða í netpósti bennyeva80@hotmail.com
|